Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Nemendur skammta sér sjálfir í matsal

27.02.2015
Nemendur skammta sér sjálfir í matsal

Fimmtudaginn 26. febrúar, skömmtuðu nemendur sér sjálfir í matsal. Skömmtunin gekk mjög vel en það var plokkfiskur í matinn. Einnig sóttu nemendur sér sjálfir rúgbrauð og ávexti/grænmeti í salatbarinn. Lífrænn úrgangur var í sögulegu lágmarki en aðal markmiðið er að minnka hann. Tilraunin heldur áfram næstu daga, en markmiðið er að skipulagið verði framvegis með þessum hætti.

Kveikjan að þessari tilraun er að mikil umræða hefur verið um matarsóun, en oft eru hálffullir rusladallar af mat eftir hádegisverðinn. Nemendur eru þátttakendur í þessu verkefni sem hófst með umræðum í bekkjum og hélt áfram á umhverfisnefndarfundi. Í framhaldi af því funduðu fulltrúar skólans og nemenda með starfsfólki Skólamatar þar sem ýmis mál varðandi mötuneytið voru rædd. Nemendur hafa komið með margar góðar tillögur og hefur nú þegar verið brugðist við sumum þeirra.

Það stendur til að vigta úrganginn í matsal og gera nemendur meðvitaðri um góða nýtingu enda flaggar skólinn Grænfánanum og vill að nemendur séu meðvitaðir um ábyrgð sína í umhverfismálum. Í nóvember var úrgangur í matsal vigtaður í tvær vikur og þá kom í ljós að hann hafði aukist frá því haustið 2013 (sjá mynd).

 

Lífrænn úrgangur í bekkjarstofum var vigtaður á sama tíma en þá kom í ljós að hann hafði minnkað umtalsvert í mörgum bekkjum og jafnframt í heildina miðað við haustið 2013 (sjá mynd).

Það er gaman frá því að segja að í 6. KH sköpuðust mjög góðar umræður og einkunnarorð nemenda verða „að vanda sig og standa sig“.

 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband