Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Gulur dagur

24.03.2015
Gulur dagur
Í gegnum tíðina hafa ýmsar hefðir skapast í skólanum. Ein þeirra er að síðasti kennsludagur fyrir páska er gulur dagur. Föstudaginn 27. mars eru nemendur og  starfsfólk hvatt til að mæta í einhverju gulu eða með eitthvað gult í skólann. Undanfarin ár hefur guli dagurinn verið glaðlegur og skemmtilegur dagur enda páskafríið rétt handan við hornið. Páskaleyfið hefst mánudaginn 30. mars og að því loknu hefst kennsla aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 7. apríl. Stjórnendur og starfsmenn Hofsstaðaskóla óska nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs og endurnærandi páskaleyfis.
Til baka
English
Hafðu samband