Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Spurningakeppnin Lesum meira

27.03.2015
Spurningakeppnin Lesum meira

Lesum meira er samstarfsverkefni skólasafnskennara og umsjónarkennara í 6. bekk. Frá því í janúar hafa krakkarnir í 6. bekk verið að lesa bækur af ákveðnum lista (10 bækur) og svo fóru þau í könnun úr bókunum og fjórir stigahæstu nemendur úr hverjum bekk voru valdir í bekkjarlið til að taka þátt í spurningakeppni sem fram fór á sal skólans fimmtudaginn 26. mars.  Mikil stemming var í skólanum, hvert lið var með sinn liðs lit og mikil spenna var í loftinu. Hver bekkur var búinn að semja stuðningslög sem sungin voru á keppninni. Spurningakeppnin skptist í fjóra hluta: Hraðaspurningar, vísbendingaspurningar, leikin orð og valflokka. Mikil spenna var í keppninni og að lokum þurfti bráðabana milli 6. KH og 6. GRG til að fá fram sigurvegara. Það var síðan 6. KH sem bar að lokum sigur úr býtum við mikinn fögnuð stuðningamanna sinna, 6. GRG varð í öðru sæti og 6. ÓP í þriðja sæti. Keppendur og áhorfendur skemmtu sér konunglega og stóðu sig frábærlega og gengu glaðir út í daginn.

Myndir frá keppninni eru á myndasíðu 6. bekkja

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband