Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skíðaferð 5. -7. bekkja

16.04.2015
Skíðaferð 5. -7. bekkja

Fimmtudaginn 16. apríl var farið með nemendur í 5. -7. bekkjum í langþráða skíðaferð í Bláfjöll. Skíðaferðin gekk vel og slysalaust fyrir sig en færið var frekar blautt og þoka í lofti. Andinn var engu að síður góður í brekkunum og skálanum. Ekki var annað að sjá en ferska fjallaloftið færi vel í nemendur og þeir tækju þessari tilbreytingu á skólastarfinu fagnandi. Myndir eru komnar á myndasíðu skólans

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband