Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sveitaferð 3. bekkja

06.05.2015
Sveitaferð 3. bekkjaNemendur í 3. bekk hafa undanfarið verið að læra um íslensku húsdýrin og hafa verið að vinna í námsefninu Í sveitinni með Æsu og Gauta. Að þessu tilefni héldu nemendur í sveitaferð og heimsóttu bæinn Bjarteyjarsand á Hvalfalfjarðarströnd. Það var vel tekið á móti hópnum af bændunum þar. Nemendur fóru í fjárhúsin og sáu nýfæddu lömbin og einn nýfæddan kiðling. Þau fræddust um dýrin í sveitinni og nutu sveitarinnar eins og sjá má á myndunum á myndasíðu 3. bekkja

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband