Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Hvar er Stekkjastaur?

04.12.2015
Hvar er Stekkjastaur?

Í byrjun aðventu nutu nemendur í 1. og 2. bekk þess að horfa á jólaleikritið Hvar er Stekkjastaur? eftir Pétur Eggerz. Leikritið fjallar um Höllu sem fer að athuga hvernig standi á því að jólsveinninn Stekkjastaur hafi ekki skilað sér til byggða. Hún kemst að því að jólasveinunum er orðið svo illa við allan ysinn og þysinn í mannaheimum að þeir hafa ákveðið að hætta að fara til byggða um jólin. Halla gerir allt sem hún getur til að fá þá til að skipta um skoðun og spurning hvort það hafi tekist hjá henni? Nemendur voru mjög áhugasamir og virkir áhorfendur á sýningunni.

Fleiri myndir frá sýningunni eru á myndasíðu skólans

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband