Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Öskudagsgleði í Hofsstaðaskóla

08.02.2016
Öskudagsgleði í Hofsstaðaskóla

Öskudagsgleði verður í Hofsstaðaskóla miðvikudaginn 10. febrúar frá kl. 8:30 og lýkur kl. 12:15 að loknum hádegismat. Fjölbreyttar stöðvar verða staðsettar um skólann sem nemendur geta farið á milli. Það verður t.d. andlitsmálun, grímugerð, hreyfifjör, spákonur, spil, tölvur og öskupokasaumur. Sirkus Íslands mætir í boði foreldrafélagsins.

Eins og aðra daga hafa nemendur með sér hollt og gott nesti í morgunhressingu og þeir sem ekki eru í mataráskrift hafa einnig með sér hádegismat. Athugið að ekki verður hægt að hita í örbylgjuofni né grilli þennan dag þar sem hluti nemenda borðar hádegismat í bekkjarstofum.
Allir nemendur eru hvattir til að mæta í búningum eða furðufötum. Vopn sem fylgihlutir við búninga eru leyfð en ekki til að berjast með.

Regnboginn: Nemendur sem eru alla jafnan í tómstundaheimilinu eftir skóla geta farið þangað kl. 12:15 þegar skóla lýkur. Vinsamlega láta vita í Regnbogann á netfangið valgerdurosk@hofsstadaskoli.is ef þið ætlið ekki að nýta ykkur þjónustu þar.

Bestu kveðjur, starfsfólk Hofsstaðaskóla.

Til baka
English
Hafðu samband