Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vinaleikskólar í heimsókn

24.02.2016
Vinaleikskólar í heimsókn

Nemendur af vinaleikskólunum Hæðarbóli, Lundabóli og Ökrum hafa komið í heimsókn til okkar í febrúarmánuði. Markmiðið var að kynnast Regnboganum tómstundaheimili skólans og borða hádegismat með 1. bekkingum. Í Regnboganum sagði Vala umsjónarmaður hans frá starfseminni þar auk þess fengu börnin að fara á nokkur leiksvæði. Einnig voru nemendur duglegir að borða hádegismatinn en þar var m.a. boðið upp á hakkbollur og pítuborgara.

Skoðið myndir frá heimsóknum vinaleikskólanna á myndasíðu 1. bekkja

Til baka
English
Hafðu samband