Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Hlaupandi nemendur í yngri deild

09.09.2016
Hlaupandi nemendur í yngri deildFlottur hópur nemenda á yngra stigi ásamt starfsmönnum byrjuðu skóladaginn föstudaginn 9. september á því að taka þátt í Norræna skólahlaupinu. Allir hlupu eða gengu a.m.k. 2,5 km í nágrenni skólans. Nokkrir hlupu þó lengra eða 5 - 7,5 km. Með þátttöku í skólahlaupinu er fyrst og fremst lögð áhersla á holla hreyfingu og að allir taki þátt. Skoða má myndir frá viðburðinum á myndasíðu skólans 2016-2017
Til baka
English
Hafðu samband