Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

1. bekkingar heimsækja vinaleikskólana á aðventunni

05.12.2016
1. bekkingar heimsækja vinaleikskólana á aðventunni

Í byrjun aðventu heimsóttu 1. bekkingar vinaleikskólana Hæðarból, Akra og Lundaból. Nemendur sem voru á þessum leikskólum heimsóttu sína leikskóla og einnig nemendur sem voru á öðrum leikskólum. Það má með sanni segja að það hafi verið mikið um fagnaðarfundi og margir nemendur gerðu sig heimakomna þegar þeir mættu í heimsóknirnar. Verkefnin voru fjölbreytt t.d. fengu nemendur að taka þátt í samsöng, vali og jólaföndri. Í janúar og febrúar koma leikskólanemendur í heimsókn til okkar til að skoða tómstundarheimilið Regnbogann og borða hádegismat. 

Myndir frá heimsókninni eru á myndasíðu 1. bekkja

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband