Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fjölbreytt atriði á jólaskemmtunum

20.12.2016
Fjölbreytt atriði á jólaskemmtunum

Í dag var síðasti dagur í skólanum fyrir jól. Þá voru haldnar jólaskemmtanir í yngri og eldri deild skólans. Nemendur úr 4.bekk sýndu helgileik og nemendur í 7. bekk sáu um skemmtiatriðin. Buðu þeir upp á glæsilegan jólasirkus með fjölbreyttum og skemmtilegum atriðum. Báðar deildir dönsuðu í kringum jólatré og tveir kátir jólasveinar litu inn á ballið hjá yngri nemendunum og sprelluðu og sungu með þeim.

Umsjónarkennarar lásu jólasögu fyrir nemendur og kvöddu þá og þökkuðu samstarfið í heimastofu áður en allir héldu kátir og glaðir í jólaleyfi. Myndir frá skemmtununum eru komnar í myndasafn skólans 2016-2017 og hérna er hægt að nálgast stutt myndband með glæsilegum skemmtiatriðum nemenda í 7. bekk.

Starfsfólk Hofsstaðaskóla óskar foreldrum, nemendum og aðstandendum þeirra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband