Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skólahátíð stóru upplestrarkeppninnar

08.02.2017
Skólahátíð stóru upplestrarkeppninnar

Skólahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram á sal skólans við hátíðlega athöfn miðvikudaginn 8. febrúar. Þar kepptu sjö nemendur í 7. bekk um að taka þátt fyrir hönd Hofsstaðaskóla í Héraðshátíð sem haldin verður fimmtudaginn 23. mars n.k. kl. 17:00 í Kirkjulundi, félagsheimili Vídalínskirkju. Nemendum í 6. bekk var boðið að fylgjast með keppninni.

Allir sem tóku þátt í keppninni stóðu sig mjög vel og fengu að gjöf frá skólanum ljóðabókina Óðhallaringla eftir Þórarinn Eldjárn. Þriggja manna dómnefnd, sem skipuð var Hafdísi Báru Kristmundsdóttur aðstoðarskólastjóra, Kristínu Thorarensen bókasafnskennara og Sigurveigu Sæmundsdóttur fyrrum aðstoðarskólastjóra Hofsstaðaskóla, valdi tvo fulltrúa skólans og einn til vara til að taka þátt í héraðshátíðinni. Eftirfarandi keppendur urðu fyrir valinu: Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir og Sonja Lind Sigsteinsdóttir sem aðalmenn og Agnes Ómarsdóttir sem varamaður.

Á Skólahátíðinni lásu nemendur svipmynd úr skáldsögunni Flugan sem stöðvaði stríði eftir Bryndísi Björgvinsdóttur og ljóð eftir Guðmund Böðvarsson. Einnig lásu nemendur ljóð að eigin vali. Silja Björg Hreiðarsdóttir kynnti höfund texta og Hrafnhildur Gyða Andradóttir höfund ljóða. Í hléinu sýndu nemendur í 6. bekk tvö skemmtiatriði sem frumflutt voru á þorrablóti 6. bekkinga.

Sjá myndir frá Skólahátíð upplestrarkeppninnar á myndasíðu skólans

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband