Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Öskudagsgleði í Hofsstaðaskóla

17.02.2017
Öskudagsgleði í Hofsstaðaskóla

Öskudagsgleði verður í Hofsstaðaskóla miðvikudaginn 1. mars frá kl. 8:30 og lýkur kl. 12:15. og þar með skóladeginum sem er skertur skóladagur eins og áður hefur verið auglýst. Fjölbreyttar stöðvar verða staðsettar um skólann sem nemendur geta farið á milli t.d. andlitsmálun, grímugerð, hreyfifjör, spil, þrautabraut, tölvur og öskupokasaumur. Allir nemendur eru hvattir til að mæta í búningum eða furðufötum. Vopn sem fylgihlutir við búninga eru leyfð en ekki til að berjast með.

Nesti
Eins og aðra daga hafa nemendur með sér hollt og gott nesti í morgunhressingu. Í hádeginu verður boðið upp á pizzu fyrir alla nemendur. Athugið að ekki verður hægt að hita í grilli eða örbylgjuofni þennan dag þar sem hluti nemenda borðar hádegismat í bekkjarstofum.

Regnboginn
Opið er í tómstundaheimilinu eftir að skóla lýkur. Vinsamlega látið vita ef börnin mæta ekki þangað á netfangið: valgerdurosk@hofsstadaskoli.is

Til baka
English
Hafðu samband