Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Íþróttakennari í Hofsstaðaskóla skólaárið 2017-2018

16.03.2017

Í Hofsstaðaskóla eru 540 nemendur í 1.-7. bekk og þar starfa yfir 80 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum bæði námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Á yngra stigi er lögð áhersla á teymiskennslu og mikið faglegt samstarf kennara.  

Í skólanum fer fram fjölbreytt og metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, skapandi starf og einstaklingsmiðað skólastarf í anda skólastefnu Garðabæjar. Kennsla í list- og verkgreinum, upplýsingatækni og nýsköpun skipar stóran sess í skólastarfinu.

Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.  Við skólann er vel útbúið íþróttahús með lítilli kennslulaug. 

Íþróttakennarar starfa saman í teymi og vinna mjög náið saman að heildstæðri kennslu með markmið skólanámskrár að leiðarljósi. Nemendur fá tvo íþróttatíma á viku og er sundkennsla kennd í hringekjuformi. Stuðlað er að fjölbreyttum kennsluháttum og að gleðin sé í fyrirrúmi.

Um er að ræða 100% starf.

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni hofsstadaskoli.is

Hæfniskröfur
Kennari með leyfisbréf til kennslu í grunnskóla
Góð samskipta- og skipulagsfærni
Áhugi á samvinnu og teymiskennslu

Faglegur metnaður og ánægja af starfi með börnum

Frumkvæði og jákvæðni gagnvart skólaþróun

Góð færni í upplýsingatækni og vinnu með tölvur og spjaldtölvur


Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl 2017


Nánari upplýsingar um starfið veita Margrét Harðardóttir skólastjóri í síma 820-8590

eða með því að senda tölvupóst á margreth@hofsstadaskoli.is og Hafdís Bára Kristmundsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 617-1591 eða með því að senda tölvupóst á netfangið hafdis@hofsstadaskoli.is

Símanúmer skólans er 590-8100.

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

 

Áhugasamir einstaklingar, án tillits kyns eru hvattir til að sækja um.

 

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is.

 

Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.

 

 

 

Til baka
English
Hafðu samband