Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vorboðinn

26.04.2017
Vorboðinn

Nemendur í 1. bekk fengu heimsókn frá Kiwanismönnum í Garðabæ. Kiwanismenn eru árlegir vorboðar því undanfarin ár hafa þeir komið færandi hendi og gefið 1. bekkingum reiðhjólahjálma. Mikilvægt er að foreldrar aðstoði börnin sín við að stilla böndin í hjálmunum rétt og ekki má gleyma að merkja þá því þeir eru allir eins á litinn.

Sjá fleiri myndir á myndasíðu 1. bekkja

Til baka
English
Hafðu samband