Umsjónarkennari í Hofsstaðaskóla skólaárið 2017-2018
Í Hofsstaðaskóla eru 540 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa yfir 80 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum bæði námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu.
Í skólanum fer fram fjölbreytt og metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, skapandi starf og einstaklingsmiðað skólastarf í anda skólastefnu Garðabæjar. Kennsla í list- og verkgreinum, upplýsingatækni og nýsköpun skipar stóran sess í skólastarfinu.
Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á vefsíðunni www.hofsstadaskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að hafa umsjón með námshópi
- Að vera leiðtogi í námi nemenda
- Að stuðla að velferð nemenda
- Að vera í samstarfi við foreldra
- Að taka þátt í þróun skólastarfsins
Hæfniskröfur:
- Kennari með leyfisbréf til kennslu í grunnskóla
- Góð samskipta- og skipulagsfærni
- Áhugi á samvinnu og teymiskennslu
- Faglegur metnaður og ánægja af starfi með börnum
- Frumkvæði og jákvæðni gagnvart skólaþróun
- Góð færni í upplýsingatækni og vinnu með tölvur og spjaldtölvur
Umsóknarfrestur er til og með 9. maí 2017
Nánari upplýsingar um starfið veitir: Hafdís Bára Kristmundsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 617-1591 eða með því að senda tölvupóst á netfangið hafdis@hofsstadaskoli.is
Launakjör samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Samkvæmt jafnréttisáætlun Garðabæjar eru allir hvattir til að sækja um - karlar jafnt sem konur.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á vefsíðu Garðabæjar www.gardabaer.is.
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.