Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vorboðinn – Vímuvarnarhlaup í 5. bekk

12.05.2017
Vorboðinn – Vímuvarnarhlaup í 5. bekkMikil stemning myndaðist í tengslum við árlega Vímuvarnarhlaupið sem fram fór miðvikudginn 10. maí. Það er Lionsklúbburinn Eik sem stendur fyrir hlaupinu í 5. bekkjum grunnskóla Garðabæjar. Tilgangurinn er að vekja börnin til umhugsunar og gera þau meðvituð um ábyrgð á eigin lífi, velferð og hamingju. Hanna Rut Stefánsdóttir hornamaður í meistaraflokki Stjörnunnar mætti á vegum Lionsklúbbsins Eikar og talaði við nemendur um heilbrigt líferni og markmiðssetningu áður en hlaupið hófst.
Hvatningaborðar og söngvar settu mikinn svip á Vímuvarnarhlaupið en allir nemendur skólans mættu og hvöttu keppendur óspart. Þrjár stúlkur og þrír drengir voru í liðum 5. bekkja auk varamanna. Lið 5. AÞ vann keppnina að þessu sinni og fengu vinningahafar verðlaunapening og bekkurinn bikar til varðveislu í eitt ár. Auk þess fengu allir keppendur viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna.
Fleiri myndir eru á myndasíðu 5. bekkja af stemningunni hjá þeim sem hvöttu hlauparana áfram.
Til baka
English
Hafðu samband