Umsjónarkennari óskast í 2. bekk vegna forfalla í 100% starf
Í Hofsstaðaskóla eru 555 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa yfir 80 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum bæði námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu.
Í skólanum fer fram fjölbreytt og metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, skapandi starf og einstaklingsmiðað skólastarf í anda skólastefnu Garðabæjar. Kennsla í list- og verkgreinum, upplýsingatækni og nýsköpun skipar stóran sess í skólastarfinu.
Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.hofsstadaskoli.is/
Helstu verkefni og ábyrgð:
Að hafa umsjón með námshópi í teymiskennslu
Að vera leiðtogi í námi nemenda
Að stuðla að velferð nemenda
Að vera í samstarfi við foreldra
Að taka þátt í þróun skólastarfsins
Hæfniskröfur:
Kennari með leyfisbréf til kennslu í grunnskóla
Góð samskipta- og skipulagsfærni
Áhugi á samvinnu og teymiskennslu
Faglegur metnaður og ánægja af starfi með börnum
Frumkvæði og jákvæðni gagnvart skólaþróun
Góð færni í upplýsingatækni og vinnu með tölvur og spjaldtölvur
Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2017.
Nánari upplýsingar um starfið veita Margrét Harðardóttir skólastjóri í síma 820-8590 eða með því að senda tölvupóst á margreth@hofsstadaskoli.is og Hafdís Bára Kristmundsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 617-1591 eða með því að senda tölvupóst á netfangið hafdis@hofsstadaskoli.is
Launakjör samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.