Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Lionskonur í heimsókn

07.11.2017
Lionskonur í heimsóknKonur úr Lionsklúbbnum Eik í Garðabæ heimsóttu nemendur í 2. bekk. Þær ræddu meðal annars um hvernig bregðast á við ef eldur kviknar og mikilvægi þess að fara vel með eld. Þær gáfu nemendum litabók sem fjallar um brunavarnir en markmiðið með bókinni er að gera börnin meðvituð um eldvarnir. Við þökkum þeim kærlega fyrir bókina sem nemendur taka með sér heim. Myndir frá heimsókninni er að finna á myndasíðu skólans
Til baka
English
Hafðu samband