Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Óveðurspá

08.01.2018
ÓveðurspáVarað er við óveðri í fyrramálið og gerir veðurspáin ráð fyrir að það verði verst á þeim tíma sem fólk fer til vinnu og börn mæta í skólann en verði gengið niður um hádegið. Veðrið getur þó verið mjög misjafnt eftir bæjarhlutum og svæðum. Foreldrum/forráðamönnum er bent á að fylgjast vel með fréttum og tilkynningum og fylgja yngri börnum í skólann. Lengri tíma getur tekið að komast á milli og einhverjir verða sjálfsagt seinir ef spáin gengur eftir. Nánari upplýsingar veittar á vefsíðu skólans og sendar í tölvupósti til foreldra. Sjá nánar hér fyrir neðan kafla úr viðbragðsáætlun Almannavarna ríkisins.
Ábyrgð foreldra / forráðamanna
Mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn fylgist sjálfir með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum upplýsingum sem gætu haft áhrif á skóla- og frístundastarf barnanna og hegði sér í samræmi við aðstæður hverju sinni. Aðstæður geta þróast með ófyrirséðum hætti og verið mismunandi eftir svæðum.
Skólar, frístundaheimili og félagsmiðstöðvar eru opnar nema annað sé tilkynnt. Í upphafi skóladags getur mönnun skóla verið takmörkuð og geta foreldrar þá búist við því að starfsfólk leiti liðsinnis þeirra. Foreldrar eru hvattir til að taka slíkum óskum vel.
Foreldrar leggja ávallt sjálfir mat á það hvort fylgja þurfi barni í skóla, óháð því hvort tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla skulu þeir tilkynna skólanum um bæjar og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlilega fjarvist. Sama gildir ef börn eða foreldrar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa.
Mikilvægt er að fólk fari ekki af stað til skóla eða vinnu ef það treystir sér ekki eða er vanbúið til farar, t.d. vegna vanbúinnar bifreiðar til vetraraksturs.
Tilkynningar
SHS kappkostar að koma tilkynningum um röskun á skóla- og frístundastarfi tímanlega á framfæri í samvinnu við útvarpsstöðvar og vefmiðla og er miðað við að slíkar tilkynningar berist eigi síðar en kl. 7 að morgni, sé ákvörðun tekin í upphafi dags.
Áríðandi er að foreldrar fylgist með tilkynningum og fari að tilmælum.
Símkerfi skóla eru misvel undir það búin að anna miklu álagi og er foreldrum því bent á að fylgjast með tilkynningum og afla upplýsinga í fjölmiðlum, á heimasíðum skóla, á vef slökkviliðsins (www.shs.is) og á Facebook-síðum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Foreldrar skulu ævinlega leita eftir staðfestum tilkynningum yfirvalda og forðast að láta stjórnast af mati barnanna á aðstæðum.
Útsendar tilkynningar SHS eiga ávallt við um höfuðborgarsvæðið í heild, en aðstæður geta verið mismunandi eftir hverfum og bæjarhlutum.

Til baka
English
Hafðu samband