Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Innritun barna í 1. og 8. bekk

23.02.2018
Innritun barna í 1. og 8. bekk

Innritun nemenda í 1. bekk (f. 2012) og 8. bekk (f. 2005) fer fram dagana 26. febrúar - 20. mars nk. Innritað er rafrænt á íbúavefnum Mínum Garðabæ. 
Athugið að nauðsynlegt er að innrita þá nemendur í 8. bekk sem skipta um skóla. Innritun lýkur 20. mars nk.

Sömu daga fer fram skráning vegna nemenda í 2.- 9. bekk sem óska eftir að flytjast á milli skóla. Áríðandi er að foreldrar tilkynni óskir um flutning milli skóla fyrir 20. mars nk. 
Innritun þeirra barna sem óska eftir dvöl á tómstundaheimilum Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Urriðaholtsskóla á næsta ári fer einnig fram þessa sömu daga. Hún er einnig rafræn á íbúavefnum Mínum Garðabæ. 
Mikilvægt er að sótt sé sem fyrst um dvöl á tómstundaheimilum
Nánari upplýsingar má nálgast í skólunum:
Auglýsing um kynningar/opin hús í skólunum.  

Athygli er vakin á að umsóknarfrestur um heimild til að stunda nám í grunnskólum utan Garðabæjar skólaárið 2018-2019 er til 10. apríl og skulu umsóknir berast skóladeild. Vakin er athygli á að umsókn fyrir nemanda sem stundar nám í grunnskóla utan Garðabæjar þarf að endurnýja fyrir hvert skólaár. Hægt er að sækja um rafrænt á íbúavefnum Mínum Garðabæ. 
Deildarstjóri skóladeildar 

Í Garðabæ velja foreldrar í hvaða grunnskóla þeir senda barn sitt. Skólastjórnendur grunnskóla í Garðabæ geta heimilað nemanda með lögheimili í öðru sveitarfélagi en Garðabæ skólavist í grunnskóla Garðabæjar enda sé nægjanlegt húsrými til staðar, ákvörðunin leiði ekki til viðbótarkostnaðar fyrir Garðabæ og fyrir liggi samningur við hlutaðeigandi sveitarfélag um greiðslu námskostnaðar. 

Til baka
English
Hafðu samband