Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vímuvarnarhlaupið í 5. bekk

03.05.2018
Vímuvarnarhlaupið í 5. bekk

Mikil stemning myndaðist í tengslum við árlega Vímuvarnarhlaupið sem fram fór miðvikudaginn 2. maí. Það er Lionsklúbburinn Eik sem stendur fyrir hlaupinu í 5. bekkjum grunnskóla Garðabæjar. Tilgangurinn er að vekja börnin til umhugsunar með því að gera þau meðvituð um ábyrgð á eigin lífi, velferð og hamingju. Eyjólfur Héðinsson knattspyrnumaður í meistaraflokki Stjörnunnar mætti á vegum Lionsklúbbsins Eikar og talaði við nemendur um heilbrigt líferni og markmiðssetningu áður en hlaupið hófst.
Hvatningaorð og söngvar settu svip á Vímuvarnarhlaupið en allir nemendur skólans mættu og hvöttu keppendur óspart. Þrjár stúlkur og þrír drengir voru í liðum 5. bekkja auk varamanna. Lið 5. AMH vann keppnina að þessu sinni og fengu vinningahafar verðlaunapening og bekkurinn bikar til varðveislu í eitt ár. Auk þess fengu allir keppendur viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna.

Sjá fleiri myndir hér

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband