Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Kveðjustund

11.06.2018
KveðjustundSkólaslit voru í Hofsstaðaskóla föstudaginn 8. júní. Þá mættu nemendur á sal skólans og/eða í bekkjarstofur þar sem fram fór kveðjustund. 

í 5. og 6. bekk voru að vanda veitt verðlaun. Í 5. bekk fyrir nýsköpun og lampasamkeppni í 6. bekk. Að athöfn lokinni kvöddu nemendur umsjónarkennara sína í stofum. Það var ánægjulegt að sjá hversu margir aðstandendur fylgdu börnum sínum. 


Skólaslit hjá 7. bekk fóru fram um hádegisbil föstudaginn 8. júní. Nemendur mættu ásamt foreldrum og fjölskyldum í hátíðarsal skólans og kvöddu eftir allt að sjö ára skólagöngu. Að lokinni athöfn var boðið upp á léttar veitingar.

Starfsfólk skólans þakkar fyrir liðinn vetur og óskar ykkur ánægjulegs sumarleyfis og hlakkar til að hitta ykkur aftur næsta haust.

Skólasetning verður miðvikudaginn 22. ágúst nk.

Sjá myndir frá skólaslitum á myndasíðu Hofsstaðaskóla skólaárið 2017-2018

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband