Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Námsgögn

10.08.2018
Námsgögn

Líkt og síðastliðið skólaár mun Garðabær útvega nemendum í grunnskólum bæjarins gjaldfrjáls námsgögn og því heyra innkaupalistar sögunni til.
Nemendur fá námsgögnin þ.e. stílabækur, reikningsbækur, skriffæri, liti, möppur og tilheyrandi afhent í skólanum.
Foreldrar þurfa áfram að útvega skólatösku, heyrnartól og að auki pennaveski í 5.- 7. bekk.
Nemendur eru hvattir til að koma aftur með að heiman námsögn sem fóru heim sl. vor og hægt er að nota áfram í vetur.

Til baka
English
Hafðu samband