Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Forvarnavika Garðabæjar verður haldin 3.-10. október 2018

29.09.2018
Forvarnavika Garðabæjar verður haldin 3.-10. október 2018

Þema vikunnar er heilsueflandi samvera og slagorð hennar er „Verum saman – höfum gaman“ en nemendur í leik- og grunnskólum bæjarins komu með hugmyndir að slagorði.
Í vikunni verður boðið upp á fræðslu og viðburði þessu tengt fyrir foreldra og börn í Garðabæ. Fyrsti viðburður vikunnar verður miðvikudaginn 3. október kl. 20.00. Fræðslufyrirlestur fyrir foreldra og starfsfólk í sal Sjálandsskóla. Flutt verða tvö erindi; Annars vegar mun Anna María Jónsdóttir, geðlæknir og einn af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna, ræða um mikilvægi samskipta og umönnunar og áhrif þess á heilsu og velferð til framtíðar. Hins vegar mun Róbert Marshall, ritstjóri vefsins vertuuti.is, ræða um útivist og samveru.
Teiknisamkeppni
Haldin var teiknisamkeppni meðal nemenda í leik- og grunnskólum bæjarins um mynd á veggspjöld forvarnarvikunnar. Fjórar myndir hlutu viðurkenningu og munu þær skreyta stofnanir bæjarins og minna okkur á mikilvægi samveru og tengsla. Sá sem teiknaði vinningsmyndina heitir Kristján Rúnar og er í 5. bekk í Hofsstaðaskóla. Aðrir teiknarar eru Daníel Pétursson í 7. bekk í Álftanesskóla, Benedikt Breki í 1. bekk í Urriðaholtsskóla og Ásdís María sem er 5 ára og í leikskólanum Hæðarbóli.

Viðburðir i vikunni eru m.a. eftirtaldir:

FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER
• Þorgrímur Þráinsson verður með opið erindi um forvarnargildi íþróttastarfs í Stjörnuheimilinu kl. 19:30.

LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER
• Starfsfólk Spilavina mætir með spil og leiki í Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7, kl. 12-14. Einnig verður farið í sippó, snú-snú og parís fyrir framan bókasafnið.
• UMFÁ verður með fjölskyldudag í íþróttahúsinu á Álftanesi frá kl. 14-17. Börnum og foreldrum er boðið að koma í íþróttasalinn og leika sér, t.d. spila badminton, bandí, körfubolta og fleira. Þjálfarar félagsins verða á staðnum. Hollar veitingar í boði fyrir þátttakendur.

SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER
• Sápukúluvinnustofur fyrir börn og fullorðna í Hönnunarsafni Íslands á Garðatorgi, kl. 13-15 í tengslum við skráningu á verkum Einars Þorsteins Ásgeirssonar. Þátttakendur búa til sín eigin sápukúluverkfæri og prófa sig áfram.
• Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall verða með útivist fyrir fjölskyldur kl. 11-14. Farið verður í hellaskoðun og eldfjallaleiðangur í Búrfellsgjá og gengið upp á Búrfell sem er afar fagur eldfjallagígur. Mæting við Vífilsstaði kl. 11 en þaðan verður ekið í halarófu inn í Heiðmörk. Munið eftir nestinu!

6.-7. OKTÓBER
• Ratleikur fyrir fjölskyldur verður í gangi alla helgina. Leikurinn er ræstur í íþróttamiðstöðinni Ásgarði en hægt er hefja leikinn á milli kl. 10-16 laugardag og sunnudag.

Nánar má fræðast um dagskrá forvaranarvikunnar hér og á vef Garðabæjar www. 

Til baka
English
Hafðu samband