Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fræðsla fyrir 7. bekkinga

22.03.2019
Fræðsla fyrir 7. bekkingaÞann 20. mars fengu nemendur í 7. bekk heimsókn þegar þau Kári Sigurðsson og Andrea Marel komu í heimsókn en þau heimsækja nemendur skóla undir merkjum fræðslunnar: Fokk me – Fokk you . Í erindi sínu ræddu þau við nemendur um ýmislegt sem snýr að samskiptum eins og að setja mörk, bæði fyrir sjálfan sig og ekki síður mikilvægi þess að virða mörk annarra. Þau ræddu við nemendur um virðingu í samskiptum og kynferðislega áreitni en þessi viðfangsefni er þarft að ræða við nemendur. Nemendur voru áhugasamir um fræðsluna og fannst hún áhugaverð.
Til baka
English
Hafðu samband