Leiðbeinandi óskast á tómstundaheimilið Regnbogann
Hofsstaðaskóli auglýsir eftir starfsmanni í hlutastarf í tómstundaheimilið Regnbogann. Opnunartími tómstundaheimilisins er frá kl. 13:30 -17:00. Í boði eru tímavinnustörf og hlutastörf með sveigjanlegum vinnutíma eftir hádegi. Hentar vel sem aukavinna með námi og/eða öðru starfi.
Í Regnboganum eru um rúmlega 200 börn í 1.-4. bekk sem eru þar við leik, íþróttir og fjölbreytt störf að loknum skóladegi.
Menntun, reynsla og hæfni:
- Uppeldismenntun sem nýtist í starfinu er kostur
- Reynsla af starfi með börnum er kostur
- Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd
Umsóknarfrestur er til og með 17. ágúst 2019.
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Vala Ósk Ásbjörnsdóttir, forstöðukona Regnbogans
netfang: valgerdurosk@hofsstadaskoli.is.
Mjöll Einarsdóttir, aðstoðarforstöðukona Regnbogans
netfang: mjollei@hofsstadaskoli.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Garðabæjar.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.