Skólasetning 23. ágúst 2019
16.08.2019
Hofsstaðaskóli verður settur föstudaginn 23. ágúst og mæta nemendur á þeim tíma sem tilgreindur er hér fyrir neðan. Forráðamenn eru vekomnir með á skólasetninguna. kl. 9.00 2. bekkur
kl. 9.30 3. bekkur
kl. 10.15 4. bekkur
kl. 11.00 5. bekkur
kl. 11.45 6. bekkur
kl. 12.30 7. bekkur
Nemendur í 1. bekk og foreldrar/forráðamenn hitta umsjónarkennara á fimmtudegi 22. ágúst og föstudegi 23 ágúst. Bréf með upplýsingum verður sent með tölvupósti.
Kennsla hefst mánudaginn 26. ágúst samkvæmt stundaskrá.
Námsgögn eru afhent í skólanum og eru gjaldfrjáls.
Haustfundir með foreldrum verða dagana 5. – 12. september
kl. 8.30-9.50 og verða nánar auglýstir síðar.
Stjórnendur