Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Forvarnavika Garðabæjar verður haldin 9.-16. október 2019.

09.10.2019
Forvarnavika Garðabæjar verður haldin 9.-16. október 2019.
Þema vikunnar er heilsueflandi samvera og slagorð hennar er „vinátta er fjársjóður - samvera og umhyggja“. Boðið verður upp á fræðslu og viðburði þessu tengt fyrir foreldra og börn í Garðabæ.

Teiknisamkeppni
Haldin var teiknisamkeppni meðal nemenda í leik- og grunnskólum bæjarins um mynd á veggspjöld forvarnarvikunnar. Fimm myndir hlutu viðurkenningu og þar af voru tvær frá nemendum okkar í Hofsstaðaskóla. Anna Guðrún Yu Þórbergsdóttir í 6. AÞ og Dagur Snorri Þórsson í 6. HK áttu myndir sem hlutu viðurkenningu.
Þær myndir sem hlutu viðurkenningu munu skreyta stofnanir bæjarins og minna okkur á mikilvægi samveru og vináttu.
Viðburðir vikunnar

ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER

Jónshús, Strikinu 6, kl. 14
Ingrid Kuhlman „Samvera – lykill að farsælli öldrun“.

Fyrirlesturinn fjallar um mikilvægi samveru og félagslegra tengsla.

MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER
Stjörnuheimili, kl. 18

Fyrirlestur um samskipti Anna Steinsen frá Kvan.

FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER
Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7, kl. 17-18:30
Spilavinir

Spilavinir mæta með fullt af alls konar spilum fyrir alla fjölskylduna og kenna og leiðbeina eftir þörfum. Verið velkomin í skemmtilega fjölskyldustund.

FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER
Álftaneslaug kl. 18-19
Samflot

Sigrún Magnúsdóttir sér um samflot í Álftaneslaug. Allir velkomnir.

LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER
Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7, kl. 11:30
Lesið fyrir hund

Bókasafn Garðabæjar í samstarfi við félagið Vigdísi – Vini gæludýra á Íslandi býður börnum að heimsækja safnið og lesa fyrir hunda sem eru sérstaklega þjálfaðir til að hlusta á upplestur. Hægt er að koma með eigin bók eða velja sér bók í barnadeild safnsins. Skráning er á netfangið bokasafn@gardabaer.is, í afgreiðslu eða í síma 591-4550.

Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7, kl. 13
Bjarni Fritzon í fjölskyldustund

Bjarni Fritzson höfundur les upp úr Orra óstöðvandi. Orri er ellefu ára strákur sem segir frá „besta ári lífs síns“ í fyrstu persónu frásögn.

Íþróttahúsið á Álftanesi kl. 14-17
Fjölskyldudagur

UMFÁ verður með fjölskyldudag þar sem börnum er boðið að koma í íþróttasalinn og leika sér, t.d. spila badminton, bandí, körfubolta og fleira. Þjálfarar félagsins verða á staðnum. Hollar veitingar í boði.

Íþróttamiðstöðin Ásgarður
Ratleikur 12.-13. október

Ratleikur fyrir fjölskyldur er ræstur í Ásgarði. Hægt er að hefja leikinn milli kl. 10-16 laugardag og sunnudag.

SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER
Frisbígolfvöllurinn við Vífilsstaði kl. 13-15
Frisbígolfkennsla

Kennsla og kynning á frisbígolfi.

ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER
Sjálandsskóli kl. 20
Fræðslufyrirlestur

„Heilbrigt fjölskyldulíf – styrleikar og áskoranir“ Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og fjölskylduþerapisti hjá Meðferðarþjónustunni Tengsl.

„Hið ósýnilega afl: Hvernig stemning mótar hegðun einstaklinga og hópa – til góðs eða ills” Viðar Halldórsson, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands.

Ókeypis aðgangur og heitt á könnunni.

MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ kl. 13:15
Leikrit fyrir 10. bekk

Garðabær býður öllum nemendum í 10. bekk í bænum á leikritið „Fyrirlestur um eitthvað fallegt“ eftir atvinnuleikhópinn Smartílab. Sýningin fjallar um kvíða og kvíðaröskun á gamansaman hátt og vekur áhorfendur til umhugsunar um þennan kvilla sem hrjáir mikið af ungu fólki í dag.


Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.
Til baka
English
Hafðu samband