Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fræðslufundur fyrir foreldra og íbúa Garðabæjar

16.01.2020
Fræðslufundur fyrir foreldra og íbúa GarðabæjarVERUM SAMAN Á VAKTINNI - ,,Það þarf heilt þorp til að ala upp barn“ er yfirskrift fræðslukvölds um áhættuhegðun barna og unglinga og forvarnir sem verður haldið þriðjudaginn 21. janúar nk. kl. 20:00-22:15 í hátíðarsal Sjálandsskóla við Löngulínu. Fræðslukvöldið er haldið á vegum íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar, Grunnstoðar Garðabæjar (fulltrúa foreldrafélaga) og grunnskóla Garðabæjar og er fyrir foreldra og íbúa í Garðabæ.

Dagskrá
Birgir Örn Guðjónsson ,,Biggi lögga“ og Leifur Gauti Sigurðsson rannsóknarlögreglumaður í Hafnarfirði fræða okkur um það helsta sem er í gangi og eftir hverju við þurfum að leita.
• Hvaða efni eru í umferð og hvernig líta þau út?
• Hver eru einkennin og eftir hverju geta foreldrar leitað?
Minningarsjóður Einars Darra stendur að fræðslu- og forvarnarverkefninu EITT LÍF.
• Fulltrúi verkefnisins deilir reynslusögu.
Guðrún B. Ágústsdóttir ráðgjafi frá Foreldrahúsi
• Fer í gegnum áhættuþætti, fikt og neyslu á efnum.
• Hvert geta foreldrar leitað og hvað geta foreldrar gert sjálfir?
Fundarstjóri er Jón Halldórsson, framkvæmdastjóri KVAN og þjálfari á námskeiðum þess.
Áhersla í verkefnum KVAN er að styðja við börn og ungt fólk til að vaxa, þroskast og öðlast aðgengi að eigin styrkleikum.
Boðið verður upp á kaffi og konfekt.
Gengið er inn í hátíðarsal Sjálandsskóla austan megin í húsinu, við íþróttasalinn. Einnig hægt að ganga inn vestan megin þar sem aðalbílastæði skólans er.


Til baka
English
Hafðu samband