Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Þorrablót 6. bekkja

12.02.2020
Þorrablót 6. bekkja

Árlegt þorrablót 6. bekkja Hofsstaðaskóla fór fram þriðjudaginn 28. janúar. Að vanda lá mikill undirbúningur að baki þorrablótinu sem bæði nemendur og starfsfólk skólans tók þátt í. Huga þurfti að skreytingum, skemmtiatriðum, danskennslu og matarveislunni. Á sjálfan veisludaginn sjá nemendur um að skera niður þorramatinn undir dyggri handleiðslu heimilisfræðikennara og að leggja á borð og undirbúa matarveisluna undir handleiðslu umsjónarkennara og deildarstjóra eldri deildar.

Dagskráin á þorrablótinu var með hefðbundnu sniði. Sýnd voru fjölbreytt og glæsileg skemmtiatriði. Atriðunum var skotið inn í þjóðleg leikrit um Gilitrutt og Bakkabræðurna. Á meðal atriða voru tónlistarflutningur, myndbönd, dans og söngur. Ekki má gleyma frábæru þorramats kynningunni og minni karla og kvenna sem að þessu sinni fjölluðu um stúlkur og drengi.

Þegar skemmtiatriðin voru búin var borinn fram matur. Boðið var upp á hákarl, súran hval, lundabagga, hrútspunga, harðfisk, saltkjöt, hangikjöt, sviðasultu bæði súra og ósúra, lifrapylsu og rófustöppu svo eitthvað sé nefnt. Nemendur fengu sérstaka áskorun um að borða hákarlinn. Flestum þóttu hann vondur en örfáum þótti hann góður. Margir borðuðu matinn af bestu lyst og voru kannski að prófa þorramat í fyrsta sinn. Eftir matinn sungu konurnar lagið „Á fætur“ og karlarnir „Fósturlandsins Freyja.“

Síðast en ekki síst var stiginn dans. Nemendur hafa undir dyggri leiðsögn Hreins, Guðrúnar Örnu og Guðrúnar Jóhönnu, íþróttakennara, lært að marsera, dansa skottís, polka, cha cha cha og kokkinn. Gleðin skein úr hverju andliti í dansinum og nutu krakkarnir þess sjáanlega að dansa og kenna foreldrum sporin sem þeir höfðu lært í íþróttatímunum. Í ár komu krakkarnir einnig á óvart með flottum Hip hop dansi sem var glæsilegur endir á frábæru kvöldi.

Þorrablót Hofsstaðaskóla hefur sjaldan verið jafn fjölmennt og í ár og var salurinn fullsetinn og gott betur. Að þorrablótinu loknu fóru allir alsælir heim með minningar um skemmtilega samverustund og gott kvöld.

Á myndasíðu árgangsins má sjá myndir frá þessum eftirminnilega degi.


 

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband