Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skáknetmót fyrir krakka á grunnskólaaldri

16.04.2020
Skáknetmót fyrir krakka á grunnskólaaldri

Garðabær heldur áfram með skáknetmót fyrir alla krakka á grunnskólaaldri á fimmtudögum (16:30) og laugardögum (11:00) í apríl. Við hvetjum ykkur til að benda ykkar börnum á að taka þátt á skákmótunum. Nú eru um 50 börn skráð í hópinn.

Hér eru skrefin sem þarf að fara í gegnum til þess að taka þátt (mjög einfalt):

1. Búa til aðgang á www.chess.com (frítt)
2. Gerast meðlimur í hópnum “Garðabær-skólar”: https://www.chess.com/club/gardabaer-skolar
3. Skrá sig á mótin sem hægt er að gera allt að 60 mínútum áður en þau hefjast.

Mótin verða einnig auglýst á forsíðu hópsins inná chess.com.

Dagskrá út apríl
• Alla fimmtudaga 16:30-17:30
https://www.chess.com/live#r=183811 (Tengill gildir fyrir mótið þann 16. apríl, tenglar verða uppfærðir á forsíðu Garðabær-skólar á chess.com vikulega)

• Alla laugardaga 11:00-12:00
https://www.chess.com/live#r=183812 (Tengill gildir fyrir mótið þann 18. apríl, tenglar verða uppfærðir inná á forsíðu Garðabær-skólar á chess.com vikulega.)

Mælum með að þið notið borðtölvu/fartölvu. Chess.com appið virkar ekki á mótum.

Til baka
English
Hafðu samband