Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Leiðbeinendur á frístundaheimili Hofsstaðaskóla óskast.

21.07.2020

Hofsstaðaskóli auglýsir eftir starfsmanni í hlutastarf í frístundaheimilið Regnbogann. Opnunartími frístundaheimilisins er frá kl. 13:30 -17:00. Í boði eru tímavinnustörf og hlutastörf með sveigjanlegum vinnutíma eftir hádegi. Hentar vel sem aukavinna með námi og/eða öðru starfi.
 
Í Regnboganum eru um rúmlega 200 börn í 1.-4. bekk sem eru þar við leik, íþróttir og fjölbreytt störf að loknum skóladegi.
 
Menntun, reynsla og hæfni:

  • Uppeldismenntun sem nýtist í starfinu er kostur
  • Reynsla af starfi með börnum er kostur
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd

 Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst 2020

 Nánari upplýsingar um starfið veitir: Vala Ósk Ásbjörnsdóttir, forstöðukona Regnbogans netfang: valaosk@hofsstadaskoli.is.
 
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Garðabæjar.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.

Til baka
English
Hafðu samband