Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Stuðningsfulltrúi óskast

21.07.2020

Hofsstaðaskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa í 75% - 100% starf. Vinnutími er frá kl. 8:00-14:00/16.15. Hluti vinnutíma er í tómstundaheimilinu Regnboganum.

Í Hofsstaðaskóla eru 570 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 100 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.

Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda skólastefnu Garðabæjar. Læsi skipar stóran sess og áhersla er lögð á lesskilning og ritun. Þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug. Síðastliðin ár hafa ýmis þróunarverkefni verið unnin í skólanum s.s. um leiðbeinandi kennsluhætti, skýra markmiðssetningu, vellíðan og hugarfrelsi, námsmat, stærðfræði, íslensku, upplýsingatækni o.fl. Unnið er að innleiðingu Uppeldis til ábyrgðar. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.hofsstadaskoli.is

Reynsla og hæfni:

  • Reynsla af starfi með börnum
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Dugnaður, jákvæðni, stundvísi og ábyrgðarkennd
  • Reynsla af nemendum með sérþarfir æskileg.
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur

Umsóknarfrestur er framlengdur til 17. ágúst 2020. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf.

 

Nánari upplýsingar um starfið veitir: Hafdís Bára Kristmundsdóttir skólastjóri, netfang: hafdis@hofsstadaskoli.is s. 617-1591. Símanúmer skólans er 590-8100.

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Garðabæjar STAG. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is.

 

 

 

 

 

 

 

 

Til baka
English
Hafðu samband