Skólasetning 24. ágúst
Hofsstaðaskóli verður settur mánudaginn 24. ágúst og hefst kennsla þriðjudaginn 25. ágúst. Skólasetning tekur um klukkustund. Vegna sóttvarna og fjarlægðartakmarkana geta foreldrar ekki komið með börnum sínum á skólasetningu. Nemendur mæta á eftirfarandi tímum:
kl. 9.00 2. bekkur Salurkl. 9.45 3. bekkur Salur
kl. 10.30 4. bekkur Salur
kl. 11.15 5. bekkur Salur
kl. 12.00 6. bekkur Bekkjarstofur
kl. 12.30 7. bekkur Bekkjarstofur
Nemendur í 1. bekk og foreldrar/forráðamenn fá sent fundarboð í tölvupósti um að koma og hitta umsjónarkennara .
Námsgögn eru afhent í skólanum og eru gjaldfrjáls.
Skráning í hádegismat er á www.skolamatur.is frá og með 24. ágúst.
Ef nemendur nýta frístundaheimilið Regnbogann þarf að skrá þau sem allra fyrst.