Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Íþrótta- og sundtímar utandyra

30.10.2020
Íþrótta- og sundtímar utandyraÍ stað hefðbundinnar íþrótta- og sundkennslu hafa nemendur Hofsstaðaskóla verið í hreyfistundum utandyra. Nemendur hafa farið í göngutúra með stoppi á skemmtilegum leikvöllum í nærumhverfi skólans ásamt því að hlaupa meðfram Arnarneslæk og gera styrkjandi æfingar. Ýmsir skemmtilegir leikir hafa þar að auki verið á dagskrá ásamt frjálsum leik á skólalóðinni okkar. Útiveran hefur verið hressandi og veðrið oftast verið ljómandi gott.
Til baka
English
Hafðu samband