Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Umsjónarkennari í 1. bekk í Hofsstaðaskóla á vorönn 2021

10.11.2020

Í 1. bekk eru 73 nemendur í tveimur hópum með fjóra umsjónarkennara ásamt öðrum  starfsmönnum. Hlutverk þeirra er að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.

Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda skólastefnu Garðabæjar. Læsi skipar stóran sess og áhersla er lögð á lesskilning og ritun. Þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.hofsstadaskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Hefur umsjón með nemendahópi ásamt öðrum í teyminu
  • Fylgir eftir námi og þroska nemenda og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska
  • Fylgist með og stuðlar að velferð nemenda
  • Er í virku samstarfi við forráðamenn
  • Vinnur náið með umsjónarkennurum í teyminu ásamt öðrum fagaðilum sem koma að nemendum
  • Tekur þátt í þróun skólastarfsins

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Reynsla af kennslu yngri barna
  • Reynsla af teymiskennslu
  • Færni í að vinna í teymi og að fjölbreyttum verkefnum
  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
  • Faglegur metnaður og ánægja af starfi með börnum
  • Frumkvæði og jákvæðni gagnvart skólaþróun
  • Góð íslenskukunnátta
  • Góð færni í upplýsingatækni og vinnu með tölvur og spjaldtölvur

 

 

Um er að ræða fullt starf á vorönn 2021, vegna forfalla, og er ráðið í stöðuna frá 1. janúar 2021.

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 1. desember 2020.

 

Nánari upplýsingar um starfið veita Hafdís Bára Kristmundsdóttir skólastjóri, hafdis@hofsstadaskoli.is og Margrét Einarsdóttir aðstoðarskólastjóri, margretei@hofsstadaskoli.is Sími Hofsstaðaskóla er 590-8100 og netfang: hskoli@hofsstadaskoli.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja umUmsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á ráðningarvef Garðabæjar https:// starf.gardabaer .is

Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.

 

 

Til baka
English
Hafðu samband