Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Mikilvægi góðra samskipta

06.01.2021
Mikilvægi góðra samskipta

Í Garðabæ hafa bæði sveitarfélagið og skólar þess lagt ríka áherslu á þá skyldu sína að tryggja á öllum tímum, velferð, vellíðan og öryggi allra nemenda. Mikilvægt er að vinna saman að því að tryggja góð samskipti til að fyrirbyggja einelti innan skólanna sem og innan samfélagsins í heild. Góð samskipti, miðlun góðra lífsgilda, regluleg fræðsla og umræður um samskiptavanda og eineltismál og afleiðingar þeirra eru nauðsynlegar.

Í frétt á vef Garðabæjar má sjá upplýsingamyndband þar sem þau Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, Björgvin Páll Gústafsson, landsliðsmarkvörður í handbolta, og Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor við HÍ og ráðgjafi hjá KVAN, fjalla um góð samskipti og mikilvægi þess að sporna við einelti.

Myndbandið er einnig aðgengilegt á fésbókarsíðu Garðabæjar 


Til baka
English
Hafðu samband