Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

1 1 2 Dagurinn

11.02.2021
1 1 2 DagurinnÍ dag er 112 dagurinn og í ár er lögð áhersla á barnavernd. Neyðarnúmerið 112 er ekki bara númerið sem við höfum samband við þegar slys ber að höndum heldur er það einnig barnanúmerið og hægt að koma skilaboðum til barnaverndar í gegnum það númer.

Flestum börnum líður vel, eiga góða að og gott, öruggt heimili. En sum börn búa við vanrækslu og verða jafnvel fyrir áreitni og ofbeldi.
Á Heilsuvera.is er efni um afleiðingar ofbeldis á börn https://www.heilsuvera.is/efnisflokkar/ofbeldi-og-vanraeksla/afleidingar-ofbeldis/afleidingar-ofbeldis-a-born/

Ef barn býr við slíkar aðstæður er hægt að hafa samband við 112 og koma tilkynningu til barnaverndar.

Tökum höndum saman og búum börnum öruggt umhverfi!
Til baka
English
Hafðu samband