Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Þroskaþjálfi skólaárið 2021-2022

29.03.2021

Þroskaþjálfi óskast til starfa í Hofsstaðaskóla skólaárið 2021-2022

Í Hofsstaðaskóla eru 570 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 100 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar. Fyrir eru starfandi tveir þroskaþjálfar í skólanum og hefur deildarstjóri stoðþjónustu umsjón með starfi þeirra og stuðningi við nemendur.
Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda skólastefnu Garðabæjar. Læsi skipar stóran sess og áhersla er lögð á lesskilning og ritun. Þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug. Síðastliðin ár hafa ýmis þróunarverkefni verið unnin í skólanum m.a. leiðbeinandi kennsluhættir, vellíðan og hugarrækt, námsmat, stærðfræði, íslensku, upplýsingatækni o.fl. Unnið er að innleiðingu Uppeldis til ábyrgðar. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.hofsstadaskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna með nemendum með mikil frávik eða fatlanir
  • Að vinna í samvinnu við fagfólk í skólanum
  • Að vera í samstarfi við foreldra
  • Að útbúa einstaklingsáætlanir
  • Að taka þátt í þróun skólastarfsins

 

Hæfniskröfur:  

  • Leyfisbréf til að starfa sem þroskaþjálfi
  • Góð samskipta- og skipulagsfærni
  • Reynsla af skólastarfi eða öðru starfi með börnum æskileg
  • Þekking á helstu leiðum í vinnu með nemendur með fatlanir

 

Umsóknarfrestur er til og með 16. apríl 2021. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2021.

 

 

Nánari upplýsingar um starfið veita Hafdís Bára Kristmundsdóttir skólastjóri, hafdis@hofsstadaskoli.is og Margrét Einarsdóttir aðstoðarskólastjóri, margretei@hofsstadaskoli.is. Sími Hofsstaðaskóla er 590-8100 og netfang: hskoli@hofsstadaskoli.is


Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Þroskaþjálfafélags Íslands.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á ráðningarvef Garðabæjar https://starf.gardabaer.is

 

Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.

 

 

Til baka
English
Hafðu samband