Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Umsjónarkennari skólaárið 2021-2022

29.03.2021

Umsjónarkennari óskast til starfa í Hofsstaðaskóla skólaárið 2020-2021

Í Hofsstaðaskóla eru 570 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 100 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.

Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda skólastefnu Garðabæjar. Læsi skipar stóran sess og áhersla er lögð á lesskilning og ritun. Þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug. Síðastliðin ár hafa ýmis þróunarverkefni verið unnin í skólanum m.a. leiðbeinandi kennsluhættir, skýr markmiðssetning, vellíðan og hugarrækt, námsmat, stærðfræði, íslenska, upplýsingatækni o.fl. Unnið er að innleiðingu Uppeldis til ábyrgðar. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.hofsstadaskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Hefur umsjón með umsjónarhópi
  • Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska
  • Fylgist með og stuðlar að velferð nemenda
  • Hefur samband við forráðamenn eftir þörfum
  • Vinnur náið með umsjónarkennurum í árganginum ásamt öðrum fagaðilum sem koma að nemendum
  • Tekur þátt í þróun skólastarfsins

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla
  • Færni í að vinna í samstarfsteymum og að fjölbreyttum verkefnum
  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
  • Faglegur metnaður og ánægja af starfi með börnum
  • Frumkvæði og jákvæðni gagnvart skólaþróun
  • Góð íslenskukunnátta
  • Góð færni í upplýsingatækni

 

 

Um er að ræða fullt starf skólaárið 2021-2022 og er ráðið í stöðuna frá 1. ágúst 2021.

Umsóknarfrestur er til og með 16. apríl 2020.

 

Nánari upplýsingar um starfið veita Hafdís Bára Kristmundsdóttir skólastjóri, hafdis@hofsstadaskoli.is og Margrét Einarsdóttir aðstoðarskólastjóri, margretei@hofsstadaskoli.is Sími Hofsstaðaskóla er 590-8100 og netfang: hskoli@hofsstadaskoli.is


Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á ráðningarvef Garðabæjar https:­//starf.­gardabaer.is

 

Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.

 

 

Til baka
English
Hafðu samband