Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Lesum meira spurningarkeppnin

18.05.2021
Lesum meira spurningarkeppnin

Spurningakeppnin Lesum meira í 7. bekk fór fram föstudaginn 14. maí. Lesum meira er samstarfsverkefni skólasafnskennara, umsjónarkennara í 7. bekk og Ólafs Péturssonar umsjónarkennara sem til margra ára hefur haldið utan um keppnina, samið spurningar og er spyrill.

Krakkarnir lásu ákveðnar bækur í leshópum og tóku í kjölfarið könnun úr bókunum. Þrír stigahæstu nemendur úr hverjum bekk voru valdir í bekkjarlið til að taka þátt í spurningakeppninni.
Mikil stemning og samstaða var innan bekkja en hver bekkur var auðkenndur í bleiku, bláu, hvítu eða rauðu. Hóparnir voru búnir að semja stuðningslög og hvatningaróp sem nýtt voru óspart meðan á keppninni stóð.

Það var 7. AS sem bar að lokum sigur úr býtum eftir bráðabana við mikinn fögnuð stuðningamanna sinna. Keppendur og áhorfendur stóðu sig frábærlega, skemmtu sér konunglega og gengu glaðir út í helgina. Myndir frá keppninni má sjá hér á myndasíðu 7. bekkja

Myndir með frétt

Til baka
English
Hafðu samband