Leiðbeinendur á frístundaheimili
Leiðbeinandi á frístundaheimili
Hofsstaðaskóli auglýsir eftir starfsmanni í hlutastarf í frístundaheimilið Regnbogann. Opnunartími frístundaheimilisins er frá kl. 13:30 -17:00. Í boði eru tímavinnustörf og hlutastörf með sveigjanlegum vinnutíma eftir hádegi, tvo til fimm daga í viku. Hentar vel sem aukavinna með námi og/eða öðru starfi. Í frístundaheimilinu dvelja börnin eftir að skóla lýkur við leiki og ýmis verkefni.
Í Hofsstaðaskóla verða 535 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 95 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.hofsstadaskoli.is
Menntun, reynsla og hæfni:
- Uppeldismenntun sem nýtist í starfinu er kostur
- Reynsla af starfi með börnum er æskileg
- Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Stundvísi, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd
- Góð íslenskukunnátta
Umsóknarfrestur er til með 16. september 2021.
Nánari upplýsingar um starfið veita Breki Dagsson umjónarmaður frístundaheimilis, brekida@hofsstadaskoli.is . Sími Hofsstaðaskóla er 590-8100 og netfang: hskoli@hofsstadaskoli.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Garðabæjar STAG.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á ráðningarvef Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
Umsókn um starfið skal fylgja kynningarbréf og starfsferilskrá. Í kynningarbréfi skal gera grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.