Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Leiðbeinandi á frístundaheimili

15.10.2021

 

Hofsstaðaskóli auglýsir eftir starfsmanni í hlutastarf í frístundaheimilið Regnbogann. Opnunartími frístundaheimilisins er frá kl. 13:30 -17:00. Í boði er hlutastarf eftir hádegi a.m.k. þrjá daga í viku. Hentar vel sem aukavinna með námi og/eða öðru starfi. Í frístundaheimilinu dvelja börnin eftir að skóla lýkur við leiki og ýmis verkefni.

Í Hofsstaðaskóla verða 540 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 100 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.hofsstadaskoli.is 

Menntun, reynsla og hæfni:

  • Uppeldismenntun sem nýtist í starfinu er kostur
  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Stundvísi, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd
  • Góð íslenskukunnátta

Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2021.

 

Nánari upplýsingar um starfið veita Breki Dagsson umjónarmaður frístundaheimilis. Hafdís Bára Kristmundsdóttir skólastjóri, hafdis@hofsstadaskoli.is. Sími Hofsstaðaskóla er 590-8100 og netfang: hskoli@hofsstadaskoli.is


Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Garðabæjar STAG.

 

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á ráðningarvef Garðabæjar https://­starf.­gardabaer.is

 

Umsókn um starfið skal fylgja kynningarbréf og starfsferilskrá. Í kynningarbréfi skal gera grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.

 

 

Til baka
English
Hafðu samband