Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Íþrótta- og sundkennari

04.01.2022

Hofsstaðaskóli óskar eftir kennara í íþróttum og sundi vegna tímabundinna forfalla. Í Hofsstaðaskóla eru 540 nemendur í 1.-7. bekk og þar starfa um 100 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar. Íþrótta- og sundkennsla fer fram í íþróttahúsinu Mýrinni/TM höllinni. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.hofsstadaskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

 

  • Íþrótta- og sundkennsla í 1. – 7. bekk í nánu samstarfi og teymiskennslu með þremur öðrum kennurum í sömu grein.
  • Skipuleggja nám og kennslu nemenda
  • Að stuðla að aukinni hreyfifærni og þekkingu nemenda á líkamsrækt og heilsueflingu.

 

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
  • Sérhæfing í íþrótta- og sundkennslu
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla
  • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Færni í að vinna í samstarfsteymum og að fjölbreyttum verkefnum
  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
  • Faglegur metnaður og ánægja af starfi með börnum
  • Frumkvæði og jákvæðni gagnvart skólaþróun
  • Góð færni í upplýsingatækni
  • Góð íslenskukunnátta

 

Um er að ræða ráðningu á vorönn 2022. Umsóknarfrestur er til 21. janúar 2022.

 

Nánari upplýsingar um starfið veita Hafdís Bára Kristmundsdóttir skólastjóri, hafdis@hofsstadaskoli.is og Margrét Einarsdóttir aðstoðarskólastjóri, margretei@hofsstadaskoli.is Sími Hofsstaðaskóla er 590-8100 og netfang: hskoli@hofsstadaskoli.is


Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á ráðningarvef Garðabæjar https:­//starf.­gardabaer.is

 

Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.

Til baka
English
Hafðu samband