Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Upplestrarkeppni Hofsstaðaskóla í 7. bekk

11.04.2022
Upplestrarkeppni Hofsstaðaskóla í 7. bekk

Upplestrarkeppni Hofsstaðaskóla fór fram á sal skólans við hátíðlega athöfn miðvikudaginn 6. apríl. Þar kepptu tíu nemendur í 7. bekk um að taka þátt fyrir hönd Hofsstaðaskóla í Upplestrarkeppni Garðabæjar sem haldin verður mánudaginn 2. maí nk. í Álftanesskóla.

Nemendur lásu svipmyndir úr skáldsögunni Kennarinn sem hvarf eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og ljóð eftir Kristján frá Djúpalæk. Einnig lásu nemendur ljóð að eigin vali. Ísabella Þórðardóttir kynnti höfund texta og Alexander Úlfur Jónsson höfund ljóða. Í hléi flutti Hekla Rán Óskarsdóttir tónlistaratriði.

Allir sem tóku þátt í keppninni stóðu sig einstaklega vel og fengu að gjöf frá skólanum viðurkenningarskjal, rós og ljóðabókina Óðhalaringla eftir Þórarin Eldjárn. Tveggja manna dómnefnd, sem skipuð var Hafdísi Báru Kristmundsdóttur skólastjóra og Helgu Maríu Ólafsdóttur fyrrverandi kennara og deildarstjóra Garðaskóla, valdi tvo fulltrúa skólans og einn til vara til að taka þátt í Upplestarkeppni Garðabæjar. Eftirfarandi keppendur urðu fyrir valinu: Klara Margrét Sveinsdóttir og Ylfa Blöndal Egilsdóttir sem aðalmenn og Birna Grímsdóttir sem varamaður, við óskum þeim alls hins besta í Garðabæjarkeppninni. Þökkum öllum þeim sem tóku þátt í skólakeppninni, þar sem allir lögðu mikið á sig við undirbúning og æfingar undanfarnar vikur.

Hér er hægt að skoða myndir frá keppninni


Til baka
English
Hafðu samband