Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar
05.05.2022
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Álftanesskóla mánudaginn 2. maí, en þá lásu nemendur í 7. bekk sem valdir voru úr Hofsstaðaskóla, Álftanesskóla, Flataskóla, Sjálandsskóla og Urriðaholtsskóla svipmyndir úr skáldverki og ljóð.Sigríður Hulda Jónsdóttir formaður skólanefndar flutti ávarp á hátíðinni og Áshildur, Embla og Nökkvi nemendur í Álftanesskóla voru með tónlistaratriði. Dómarar keppninnar voru þær Björk Einisdóttir og Ingibjörg Einarsdóttir frá Röddum ásamt Kristínu Sigurðardóttur skólastjóra Salaskóla.
Nemendur stóðu sig með mikilli prýði við upplesturinn og í lokin fengu allir viðurkenningu fyrir þátttöku. Tíbrá Magnúsdóttir nemandi í Álftanesskóla stóð uppi sem sigurvegari keppninnar, í öðru sæti var Hákon Bjarnar Eiríksson nemandi í Sjálandsskóla og í þriðja sæti var Klara Margrét Sveinsdóttir nemandi í Hofstaðaskóla.
Við óskum sigurvegurunum innilega til hamingju og öllu þátttakendum fyrir skemmtilega keppni.
Hér má sjá myndir