Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skólaslit 8. júní - tímasetningar

02.06.2022
Skólaslit 8. júní - tímasetningar

Skólaslit verða í Hofsstaðaskóla miðvikudaginn 8. júní. Nemendur mæta í stutta samveru á sal og fara síðan í bekkjarstofur með umsjónarkennurum. Forráðamenn eru velkomnir með á skólaslitin.

Við bendum öllum á að koma gangandi í skólann þennan dag ef kostur er og að nota bílastæðin við FG þar sem er nóg pláss.

Minnum á að fara vel yfir heima hvort þar séu bækur af bókasafni skólans og koma með þær á skrifstofuna. Enn vantar um 150 bækur!

Starfsfólk og stjórnendur skólans þakka gefandi samstarf á skólaárinu sem er að líða og senda bestu kveðjur um ánægjulegt sumarleyfi.

Skólastarf hefst að nýju með skólasetningu þriðjudaginn 23. ágúst. Skóladagatal næsta árs er að finna hér á vefsíðu skólans undir Skólinn/Skóladagatal.

Skólaslit - tímasetningar

Kl. 9.00                                 1. bekkur
Kl. 9.30                                 2. bekkur
Kl. 10.00                               3. bekkur
Kl. 10.30                               4. bekkur
Kl. 11.00                               5. bekkur
Kl. 11.30                               6. bekkur
Kl. 12.00                               7. bekkur

 

 

 



 

 

Til baka
English
Hafðu samband