Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Göngum í skólann hefst 7. september

06.09.2022
Göngum í skólann hefst 7. september

Göngum í skólann (www.iwalktoschool.org) Verkefnið verður sett í sextánda sinn miðvikudaginn 7. september og lýkur því formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 5. október. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.

Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta, hjólabretti eða annað. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

Á hverju ári taka milljónir barna í yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt en fyrsta árið voru þátttökuskólarnir 26 en alls 78 skólar skráðu sig til leiks árið 2021.

 

Til baka
English
Hafðu samband