Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Frekari lokanir í Flataskóla og Hofsstaðaskóla

24.01.2023
Frekari lokanir í Flataskóla og Hofsstaðaskóla

Verkfræðistofan Mannvit hefur unnið að heildarúttektum á skólahúsnæði Hofsstaðaskóla og Flataskóla vegna rakaskemmda. Fyrstu niðurstöður sýnatöku bárust 23. janúar og hefur Garðabær gripið til þess ráðs að loka rýmum i báðum skólum í kjölfarið.  Kennsla mun raskast í skólunum vegna þessa næstu tvo daga fyrir ákveðnar bekkjardeildir.

Flataskóli: Fjórar bekkjarstofur, matsalur og húsnæði leikskóladeildar.
Hofsstaðaskóli: Um er að ræða bekkjarstofur, tölvustofu og bókageymslu.

Bæjaryfirvöld og skólastjórar leggja áherslu á að grípa til aðgerða strax til að tryggja öryggi starfsfólks og nemenda. Forráðamenn og starfsfólk skólanna fengu sendan upplýsingapóst í kvöld vegna málsins. Bæjaryfirvöld bíða nánari upplýsinga úr sýnatökum. Þegar hafa verið tekin tæplega 100 efnissýni og DNA/ryksýni í Flataskóla og rúmlega fimmtíu í Hofsstaðaskóla.

Í desember þurfti einnig að grípa til lokanna kennslurýma í báðum skólum og er nú unnið að endurbótum og nánara framkvæmdaplani fyrir skólana.

Næstu skref samkvæmt verklagi Garðabæjar:

  • Stofunum sem um ræðir verður lokað með loftþéttri lokun á meðan viðgerðir standa yfir.
  • Beðið er eftir endanlegum niðurstöðum sýnatöku og þá verður hægt að leggja heildarmat á ástand bygginga og í kjölfarið ráðast í endurbætur þar sem þörf er á. Ef til þess kemur verður afmörkuðum svæðum lokað með loftþéttri lokun á meðan viðgerðir standa yfir.
  • Víðtækar hreingerningar verða framkvæmdar strax eftir lagfæringar ásamt hreinsun loftræstikerfis.
  • Að lokum mun Mannvit sjá um eftirfylgni en sýnataka fer aftur fram 2-3 mánuðum eftir að viðgerðum er lokið.

Nánar um verklagið hér

Vakin er athygli á að á næstunni má búast við að gera þurfi breytingar á tilhögun kennslu vegna tilfærslna á bekkjarstofum eða öðru starfi og verður upplýst um það sérstaklega af skólastjórnendum.

Starfsfólk og forráðamenn fá senda reglulega upplýsingapósta um stöðu mála og allar upplýsingar um framvindu viðgerða verða birtar á vefsíðu Garðabæjar.

Til baka
English
Hafðu samband